Uppruni þekkingar?
Hvernig finnur maður uppruna þekkingar? Ég var að skrifa heimildaskrá um daginn og fór aðeins að pæla. Ef einhver mundi taka sig til og elta heimildir í ritgerðum og bókum, þ.e. skoða þær bækur sem eru listaðar í heimildum og skoða heimildaskrá þeirra rita/bóka þá mundi hann að endanum enda á uppruna þekkingar. Það ætti ekki að skipta máli hvar byrjað er því alltaf ætti maður að enda á sömu heimild. En hver er sú heimild? Býr sú heimild yfir svarinu við alheiminum? Er svarið 42? Kannski maður taki jólafríið í þetta...
Annars var ég að koma úr boltanum þar sem ég enn og aftur fór á kostum. Var reyndar í tapliðinu þrátt fyrir stórkostlegan leik á vörninni/miðjunni/sókninni. Vantar soldið upp á skipulagið stundum. Þessir menn eru ekki í albesta formi sem þekkist og því breytist leikkerfið oft eftir því sem tímanum líður. Byrjar kannski í 3-2-1 en endar nánast alltaf í 2-1-4 þar sem ég er oftast þessi eini. Það verður samt að viðurkennast að stundum endar þetta í 3-0-4...
Rekstrarfræðiverkefni er loks að taka enda og þá getur próflesturinn svo smátt byrjað að hefjast. Ég ætla að láta Steinþór búa til lestrarplan fyrir mig og þá ætti ég að komast yfir allt efnið þrisvar og fá hreinar 10-úr.
Samt ekki.