þriðjudagur, maí 25, 2004

Of þreyttur

Of þreyttur ...

til að blogga. Ég er alveg að leka niður hérna. Fór út að skokka eftir vinnu með Sverrir og svo í sund. Það var nokkuð gott en líka nokkuð ljóst að ég þarf að fara skokka meira. Formið er ekki alveg upp á sitt besta. Svo kom ég heim og eldaði mat (matsatriði hvort ég hafi eldað kannski, sauð hrisgrjón og hitaði fiskibollur) og settist upp í stofu og setti Finding Nemo í heimabíóið. Þetta er bara nokkuð fyndin mynd. Þarf samt að horfa aftur á endan við tækifæri, var hálf sofandi.

Smá update úr vinnunni:
Framkvæmdir ganga vel. Búið er að parketleggja íþróttasalin og nú er unnið hörðum höndum við að klára búningsherbergi og sundlaugina. Verkstjórin kom til mín í gær og tilkynnti mér að bráðum verður unnið til 7 á kvöldin í stað hálf 6. Það er svosem allt í lagi, einn og hálfur auka í yfirvinnu.

Svo er bifvélavirkinn Trausti búinn að redda bílnum sínum. Já, sjálf framkvæmdin tók nú ekki langan tíma. Fyllti vatnskassann.... Mjög svekkjandi, komst að því að það er ekkert að bílnum mínum eftir að hafa látið hann standa í rúma 2 mánuði. Jæja, sparaði smá bensínpening. Aldrei aftur að taka neitt sem starfsfólk bensínstöðva segir trúanlegt (skil ekki afhverju mér datt það nokkurn tímann í hug...)

Jæja, góða nótt!

Jú eitt í viðbót, ný einkunn kom í gær. Eðlisfræði 2V mitt uppáhaldsfag. Ég náði tilsettum árangri og náði. Glæsileg fimma þar á ferð. Allt fyrir ofan 5 er aukavinna! Nýja mottóið mitt...

föstudagur, maí 21, 2004

Fyrsta vikan búin

Flöskudagur

Jæja, þá er kominn flöskudagur og fyrsta vikan í nýju vinnunni búin. Ég er þó ekki kominn í helgarfrí því mér tókst að næla mér í næturvakt um helgina. En það er ekki fyrr en á morgun svo það er möguleiki á fyllerí í kvöld. Í dag var ekkert að gera í vinnunni og tíminn því mjög lengi að líða. Strákarnir fór flestir heim um tvö svo ég sat einn eftir með Gumma gamla. En Gummi gamli er verkamaður sem hefur sérhæft sig í sópun og feluleik. Hann eyðir mestum deginum í að fela sig og fá sér smók. Þess á milli fer hann í kaffipásu og fær sér kaffi með sykrinu. Við töldum molana sem hann setti í bollann sinn í dag. 10 stk hvorki meira né minna. Svo tekur hann líka alltaf nokkrar í lófann og étur með.

Ný einkun kom í dag, Tölvuteiknun og framsetning. Þar var ég með 8.5 og er ekki alveg sáttur. En hæsta einkunn var 9 svo mar verður vist að sætta sig við það. Um helgina er stefnan að koma bílnum í bílskúr og byrja að rífa vélina í sundur. Það er vonandi að þetta gangi upp því ég er strax orðinn mjög leiður á að hjóla í vinnuna.

Í kvöld er svo annar leikur Vikings í úrvalsdeildinni. KA menn koma í heimsókn í víkina. Kannski mar kíki. Ég nenni ekki að tjá mig um gengi KR í bili fyrir utan það að ég vil Willum burt sem fyrst.

mánudagur, maí 17, 2004

FARÐU OG SOPAÐU!

Ný einkunn komin: 9 í lík og töl. Í þetta skipti reyndist ég ekki alveg sannspár en samt var einkunnin innan spábilsins. Allavega, þetta kom mér skemmtilega á óvart og er ég bara mjög sáttur.

Svo hóf ég nýjan starfsferil í dag. Mætti niðrí Garðabæ klukkan 7.30 þar sem ÍAV eru að byggja íþróttahús og sundlaug. Mér líst bara ágætlega á þetta. Fyrsta verkið var nottla að sópa, klassískt vill Bjarni meina. Svo seinna var ég settur í að bera örugglega 2 tonn af parketi inn í húsið. Skemmtilegt. Starfsfólkið þarna er bara fínt, líst ágætlega á hópinn. Átti kannski ekki von á miklu, geta nottla ekki allir verið Einstein.
Þegar ég mætti fékk ég hanska. Í kaffihléinu fékk ég hjálm og í hádeginu fékk ég galla. Ef ég er heppinn fæ ég skó með stáltá í kaffinu á morgun og þá er ég hinn fullkomni verkamaður.

O.C áðan? Magnað. Djöfull fer þessi Oliver í taugarnar á mér. Henti óvart fjarstýringunni í sjónvarpið.
Er það bara ég eða er það soldið sexy hvernig Marissa talar. Svona soldið eins og spassi, erfitt að lýsa því. Hún talar eins og hún sé með eitthvað upp í sér. Allavega, ég er að fíla það!
Sjitt hvað Summer er vel vaxin. Ég fer að efast um að Seth hafi valið rétt....
Þegar ég er orðinn stór þá vil ég vera eins og Sandy Cohen. He's got it all. Hann er svalur, ríkur, á flotta konu, skemmtilegan krakka, býr á töff stað og hefur gaman að því sem hann gerir. Hvað er hægt að óska sér meira?

Svo fór ég á fótboltaleik um helgina. Íslenska deildin að byrja. Nú halda margir að ég hafi farið á KR leikinn en nei, ég fór á botnslaginn Fram vs. Vikingur. Ég var að vinna þegar KR leikurinn var bara svo að það sé á hreinu. Á sunnudaginn fór ég með Bjarna og Jonna á Fram vs. Vikingur til að sjá Steinþór þreyta frumraun sína í Íslensku úrvalsdeildinni. Heyrst hafði að fjöldinn allur af útsendurum frá toppliðum evrópu hafi boðað komu sína. Ég held að Steinþór eigi ekki von á símtali...
Vikingarnir voru alveg skelfilegir í þessum leik. Vörnin míglak og kaupin á Martin Trancik hljóta að falla undir mistök á við kaup KR á Mussa Dagnogo og kaup Manchester á Massimo Taibi. Skelfileg mistök kostuðu Viking fyrsta markið. Svo kom annað og svo þriðja. Leikurinn var búinn í hálfleik. Jæja, það varð að hafa það, við fengum þó að sjá leftbackinn nær í seinni hálfleik því þá er eins og sumir kannski vita skipt um vallarhelming. En nei, stubbnum var skipt út af í hálfleik. Andvörp heyrðust í stúkunni og ótti breiddist út meðal stuðningsmanna Vikings. En ég hef það fyrir öryggum heimildum að Steinþór er ekki meiddur, hann var bara svo andskoti *******.
Nei nei, þetta mun flokkast undir tactical substitution...

En nóg um það, ég er farinn að slappa af.

sunnudagur, maí 16, 2004

METALLICA MIÐI TILSÖLU

í a-svæði, seldur hæstbjóðanda á kommentkerfinu....




Ég eyddi aðfaranótt laugardags í síðumúla í biðröð. Soldið kalt sko. Ég og Haukur mættum um eittleytið og þá var slatti mættur. Örugglega 100-150 manns á undan okkur. Svo var annars bara setið og spjallað og spilað backgammon. Fjölmiðlafrumvarpið og íraksstríðið var rætt almennilega í gegn en eftir því sem áfengismagn í blóði jókst varð minna vit í umræðunum. Hittum svo Sveinbjörn sem var með bróður sínum aðeins framar í röðinni. Við gerðumst svo grófir að tróða okkur til þeirra.
Svo var Hlynur algjört yndi og mætti með morgunmat handa okkur áður en hann fór í síðasta prófið sitt.
Um 10 leytið (sala hófst 12) fór fólk að taka saman tjöldin sín og það sem hafði verið myndarleg röð breyttist í gamla góða íslenska hrúgu. Æðislegt. Hörð barátta hófst og gekk mér nokkuð vel í henni. Okkur tókst að troða okkur mun framarlega.
Allavega, við fengum miða og það í a-svæði.

Svo var farið heim og mönnum farið að hlakka til að komast í hlýtt rúmmið. En ekki Traustinn því hann var að fara að vinna. Þetta var einhver mornkasti vinnudagur minn frá upphafi. Drakk kaffi og magic eins og ég fengi borgað fyrir það. Fór svo bara beint heim að sofa eftir vinnu.

Í dag var svo síðasti vinnudagur minn í Laugardalslauginni, sem er frekar ánægjulegt. Engin gaf mér köku....

Jæja, maturinn er kominn á borðið. Eftir mat ætla ég að kíkja á Laugardalsvöllinn að sjá Steinþór leika sinn fyrsta leik í úrvalsdeild. Ég spái því að hann skori sjálfsmark.

föstudagur, maí 14, 2004

BRÚÐKAUP

Í þessum skrifuðu orðum er brúðkaup í gangi í Danaveldi. Bein útsending á RÚV og alles. Mér hefur alltaf fundist þetta konungsdæmi fáránlegt og finnst það enn. Skil ekki hvernig fólk getur lifað sig svona inn í líf annarra. Mér finnst þetta eigilega hálf sorglegt. Álíka sorglegt og einmanna karlmenn sem fara á súlustaði. En ég fór einmitt á Bohem í gær. Mín fyrsta heimsókn á súlustað. Við sátum við drykkju heima hjá Gísla, sem átti einmitt afmæli í gær, ég og svo stærðfræðigengið - Einar, Jonki, Jói og Bjarni. Þar sem Gísli býr í nálægt Bohem datt okkur það snjallræði í hug að kíkja þangað. Tjekka skessunum hehehehehe....
Þetta var skemmtileg upplifun. Mér sýndist Gísli skemmta sér ágætlega.

Svo er fyrsta einkunn komin. Ég reyndist sannspár hvað hana varðar, 9 í greiningu burðarvirkja. Nokkuð sáttur með það. Gerði svekkjandi klaufavillur. Það nú ekki oft sem maður er ekki 100% sáttur við 9. Eins og til dæmis ef ég fæ 9 í Eðlisfræði 2 þá verð ég alveg brjálaður og tek það aftur í sumar!

fimmtudagur, maí 13, 2004

LJÚFT

Þá er maður bara búinn í prófum. Einstaklega góð tilfinning. Ég held meira að segja að ég hafi náð prófinu í dag.
Var að koma af Eldsmiðjunni og nú á eftir á að heimsækja afmælisbarnið Gísla og fá sér nokkra kalda í viðbót.

Þetta er búið að vera strembið og spennandi verður að sjá uppskeruna. Ég sáði nú ekki öllum fræum en vonandi að uppskeran verði engu að síður ágæt.

miðvikudagur, maí 12, 2004

The end of an era!

Jæja, nú er kadlinn bara kominn í byggingarvinnu. Ég náði loksins í Árna starfsmannastjóra hjá ÍAV í dag og var formlega ráðinn í vinnu. Ég á að mæta upp í Garðabæ hálf átta mánudagsmorgun og smíða íþróttahús. Vei. Þetta þýðir það að ég mun ekki vera í lauginni í sumar sem er tiltölulega jákvætt. Samt soldið skrýtið verð ég að segja. The end af an era! Benni hættur líka og líklegast Eyklór. Þríeykið horfið. Hver mun fylla hið auða pláss? Ég sé enga potential arftaka. Óli Helgi verður einmanna meðal 17 ára stelpna. Eða kannski ekki... Face it Óli, the golden days are over in Laugardalslaug.

Eðlisfræði á morgun. Stefnan er sett á fimmu. Mér finnst ég ekki kunna neitt í þessu helvítis rafmagnsdrasli. Rugla þessu öllu saman. En vonandi hefst þetta með smá syrpu í kvöld og svo smá heppni í prófinu á morgun.

En þetta er að klárast. Bara þetta eina próf eftir og svo kemur sumar. Þetta verður kolklikkað sumar.

Og svo var verið að redda mér miða á Metallica. Reyndar B-svæði. Ég hugsa ég mæti samt í röðina á laugardaginn og reyni að fá miða í A-svæði. Það verður bara stemning. Mæta með bjór og gítar og góða skapið.

En nú er ekkert gott skap því eðlisfræðin bíður.

Þá er ekki meira blogg í dag,
veriði sæl

mánudagur, maí 10, 2004

Þar fór það!

Greiningarprófið í dag saug feitan dela eins og sumir þétt nettir gaurar segja. Draumurinn um yfir átta í meðaleinkunn líklegast úti. E[einkunn í greiningu IIB] = 6. Staðalfrávik 1.

O.C í kvöld. Héld að horfi á það til að hressa mig aðeins við. Svo er það bara eðlisfræðin. Síðasta prófið er á fimmtudaginn og svo verður dottið all svakalega í það.

Það er eitt sem fer í taugarnar á mér í prófum. Það er fólkið sem situr yfir manni. Hvaðan er þetta fólk fengið? Ég neita að trúa því að þetta séu kennarar. Þetta er eitthvað svo misheppnað lið. Mér grunar að þetta séu eldriborgarar sem eru fengnir í þetta. Svona til að þéna smá auka pening til að kaupa kattamat í kvöldmat. En það sem fer mest í taugarnar á mér er hvað það virðist vera erfitt hjá þeim. Oooh það er svo erfitt að sitja og fylgjast með fólki í 3 tíma. Í dag voru þrjár konur sem sátu yfir okkur og allar voru inni tvisvar, að minnsta kosti. Sem þýðir það að þær sátu þarna í ca hálftíma á haus. Og ekki nóg með að þau geta ekki lifað klukkutíma án kaffihlés heldur virðist líka voða erfitt fyrir þau að halda út þennan hálftíma. Mæta með blöð, ok get sætt mig við það, en að mæta með vasadiskó finnst mér nú einum of langt gengið. Comeon, þú þarft bara að sitja kyrr í smátíma og fylgjast með fólki. Svo þurfa þær (já ég segi þær því þetta er eigilega undantekningarlaust konur) líka alltaf að labba um. Aaaaah teygja aðeins á sér, það er jú svo þreytandi að sitja svona rosalega lengi.
Á meðan situr maður sveittur yfir prófi og tíminn flýgur frá manni á meðan hann virðist standa í stað á kennaraborðinu.

jæja, búinn að hanga nóg á netinu í dag. Búinn að spjalla heillengi við útlönd, þ.e Eyþór og svo hitti ég þá Hannes og Bjössa á msn. Þeir voru staddir í Sofiu, höfuðborg Bulgaríu(rétt fyrir ofan grikkland fyrir þá sem spila geosense).Hannes var með webcam og því fékk ég að sjá hans fagra andlit. Gaman að því.

sunnudagur, maí 09, 2004

Ég var að fá hugmynd sem á eftir að gera mig moldríkan! Ég ætla að stofna fyrirtæki sem selur daga. Hverjum vantar ekki auka dag? Það yrði pottþétt mikil sala rétt fyrir jól og svo á vorin þegar nemendur eru í prófum. Það eru allir að tala um að þeir þyrftu bara einn auka dag... Ég á samt enn eftir að ganga frá smáatriðum í sambandi við útfærsluna.

Stærðfræðigreining 2 á morgun. Ekki tilhlökkunarefni. Ef ég ætti bara aukadag....
Ég var samt tiltölulega bjartsýnn í gær, en svo fór ég að reikna gömul próf og nú sé ég eigilega bara svart. Sé nú samt glitta í birtu framundan, svona 10 - 12 klst framundan.

Tölvuteiknunarprófið í gær var frekar ísípísí. Eftir prófið skelltum við okkur í sund. Þ.e ég, Zteinþór, Birkir og Helgi. Vesturbæjarlaugin varð fyrir valinu og að þessu sinni klikkaði ég ekki og mætti bara í plain speedo sundbuxum. Ekkert Víkingsmerki þar. En ég fann ekki KR stuttbuxur svo neutralt varð að duga. Við tókum körfuboltaleik sem ég man ekki hvernig endaði, enda skipta úrslitin ekki máli.

Þetta gladdi mig afar mikið. Sérstaklega að Oliver Kahn skuli hafa gert mistök.

Hvernig er þetta hægt? Ef Carlos Quiros eða hvað sem hann heitir verður ekki reikinn eftir þetta tímabil þá má ég hundur heita. Að Real Madrid skuli ekki vinna einn einasta titil er svipað og Jim himself mundi falla í greiningu 2B.

Ég samgleðst Eyrúnu því að nú loksins eru sýningar á The OC hafnar í Noregi.

over and out!

þriðjudagur, maí 04, 2004

Fór í próf í dag. Greining burðarvirkja. Það gekk bara nokkuð vel. Ég gerði samt nokkrar klaufalegar klaufavillur. Eftir prófið fórum við (ég, Steinþór, BCK, Helgi og Birkir) á Culiacan þar sem ég ákvað að prófa eitthvað nýtt. Við Birkir fengum okkur quisadillas (eða eitthvað álíka) sem var mjög gott og mæli ég hér með með því!



Nú, svo fór ég heim og horfði á Kill Bill vol. 1. Þvílik snilld! Ég dýrka Tarantino. Eftir það fór ég með Bergi í skokk og sund og svo sit ég bara hér. Ótrúlegt en satt...

Ég skellti mér líka í sund um daginn. Tók með mér sundföt þegar ég fór upp í skóla til að læra og rölti svo út í vesturbæjarlaug þegar ég var orðinn nægilega súr í hausnum. Ég kann afar vel við vesturbæjarlaugina. Rifjar upp gamlar minningar frá því að maður var lítill polli í vesturbænum. En nema hvað, ég hugsaði ekki neitt þegar ég tók til dótið og setti víkingsstuttbuxurnar mínar í töskuna. Mér leið vægast sagt illa í víkingsstuttbuxum í vesturbæjarlauginni. Mér leið eins og aðskotahlut, svikara. Næst ætla ég að reyna að grafa upp KR stuttbuxur og mæta með stolti í vesturbæjarlaugina.

Las það í dag að Owen væri launahæsti maður í enska boltanum. Hversu mikið rugl er það? Mér finnst hann mjög ofmetinn sem leikmaður. Hvað finnst ykkur?

laugardagur, maí 01, 2004

Vá hvað Sophia Loren er mikil gella! Og fædd 1934. Ótrúlegt!



Grumpy old men er líka snilldarmynd btw.