þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Nú er skólinn loksins loksins byrjaður!! Fór í minn fyrsta tíma á þriðja misseríi í dag. Dagurinn byrjaði þrusuvel í umferðarteppu við hringbraut en engu að síður mættum við Steinþór á réttum tíma. Greining 3B með Hitler sjálfan sem kennara. Frekar skrýtin tilfinning að vera mættur aftur en gaman að hitta suma á ný (bara suma sko). Eftir langan og erfiðan skóladag var haldið á Hamborgarabúlluna sem fær góðan plús í kladdan fyrir fínan borgara. Eitthvað var Steinþór nú að væla yfir því hvað hann fékk lítið (hann fékk sér samt alveg tvöfaldan sko) og ákvað að fá sér annan.

Gaman var að sjá að BCK var heill á húfi eftir Lundúnarferð sína.

Helgin bauð upp á rafting með stjórnum nemendafélagana í verkfræði í Þjórsá. Þar fékk ég mikið ábyrgarstarf því ég var fremstur í bátnum og þurfti því að sjá um taktinn. Við Helena og stundum Svala (sem einnig voru fremstar, bara hinum megin) stóðum okkur með stakri prýði og stendur vist til að veita okkur heiðursorðu fyrir vel unnin störf.
Eftir rafting var síðan haldið í sumarbústað og drukkið langt fram á nótt með tilheyrandi limbó og rokkhlaupi.
Fínt að taka svona gott djamm fyrir skólann því nú tekur alvaran við og því minna um djamm.... Vonandi er nú samt vísindaferð á föstudaginn....

Nú er stefnan sett á að fara út í hlaupatúr með Philips vini mínum.

sunnudagur, ágúst 15, 2004

WONDERFUL COPENHAGEN - brjóst í strætó

Loksins loksins - ég er nú kominn með íslenska stafi. Ég er nú frekar lítið við tölvu hérna úti svo ég hef eigilega ekkert pælt í að reyna að redda þessu.
Allavega þá sit ég núna með bjór við hönd, ekki tuborg og ekki carlsberg. Reyndar bara alls ekki danskann bjór heldur ekta tékkneskann bud sem bróðir minn færði mér eftir ferðalag sitt til Tékklands fyrr í sumar. Allavega, ég fór í dag að sjá Brøndby keppa við FC Midtjylland á Brøndby stadion í dag þar sem ég ásamt 17075 öðrum sá strákana í gul-bláu treyjunum vinna 2-1 með marki á lokamínutunni úr aukaspyrnu. Frábær leikur og frábær stemning, alltaf gaman að kíkja á leiki með Brøndby. Á sama tima tapaði FC København stigum á móti OB sem er mjög gott. En nú verður smá hlé á boltanum í Danaveldi því leikmenn ætla í verkfall á þriðjudaginn. Ég hef alveg síðan ég kom reynt að átta mig á deilunni milli leikmanna og DBU en átta mig ekki enn á því hverjir eru vondu gæjarnir. Þetta verkfall er samt mjög slæmt þar sem Brøndby eru að fara keppa í UEFA cup í næstu viku og geta því ekki teflt fram sínum atvinnuleikmönnum. Þeir geta þó notað nokkra svía sem eru ekki í danska leikmannasambandinu og svo stefna þeir að því að tefla fram gömlum hetjum eins og Schmeichel, Laudrup, Mogens Krogh, Ole Bjur, John Faxe Jensen, Vilfort og fleirum. Það gæti orðið mjög gaman að sjá. Þeir eiga að keppa við lið frá lettlandi sem þeir gerðu 0-0 jafntefli við á útivelli.

Annars er lífið í Danmörku bara búið að vera ljúft. Danmörk er gott land til að slaka á í og vera ligeglad. Búinn að fara nokkrum sinnum til köben og eyða pening og hitta góða vini ásamt því að drekka nokkra öllara. Ég er meira að segja búinn að taka smá lit því veðrið er búið að vera mjög gott (hef reyndar heyrt að það hafi nú ekki verið svo slæmt á klakanum heldur). Einnig hafa nokkrar freknur bæst í hópinn.

En nú ætla ég að klára bjórinn fyrir framan sjónvarpið og jafnvel fá mér það besta og kannski eina góða sem sænskt samfélag hefur látið frá sér (sorrí Bjarni).

Ryste røv!

mánudagur, ágúst 09, 2004

Nu er Itsuart kominn til Danmerkur og er ekki ad svo stöddu med islenska stafi.
En her er vedrid frabært, eigilega bara of gott tvi tad er stundum erfitt ad sofna a kvöldin sökum hita. Eg for med familien i sumarbustad yfir helgina og eyddi mest öllum timanum a ströndinni. Sem er mjög gott.

Eg skrifa lengri report um leid og eg redda islenskum stöfum.

Hyggehejsa!