sunnudagur, júní 27, 2004

Þarna lágu Danir í því

Ég er ekki í góðu skapi núna. Þunnur og tapsár. Danir voru að tapa fyrir Tékkum áðan 3-0 og eru þar með dottnir úr leik.
Ég virðist bara blogga vikulega núna. Ég ætla að reyna að bæta mig í næstu viku. En síðasta vika var nú bara fín. Fór í bíó tvisvar, fyrst Punisher og síðan bauð Hannes mér á Some Kind of Monster sem er heimildamynd um Metallicu. Frekar skrýtin mynd. Hún snýst um gerð síðustu plötu, St. Anger, og svo bara þá Lars, James og Kirk. Þeir voru þarna hjá sálfræðingi og opnuðu sig virkilega á köflum. Þetta var vægast sagt soldið öðruvísi mynd en ég átti von á en hún var samt sem áður fín og gaman að fá að sjá hvernig þeir eru. Mæli samt ekki með henni nema fyrir þá sem fíla Metallicu. En talandi um það þá eru tónleikarnir næstu helgi!! Magnað, ég hlakka ekkert smá til. Næsta helgi verður vonandi góð því þá ætla ég mér að skreppa í útileigu í Skóga meðal annars með Hlyni og Bjarna en við þrír ætlum að deila tjaldi að mér skilst. Svo verður farið beint í bæinn á sunnudeginum og horft á úrslitaleikinn á EM og síðan verður farið og stærstu tónleika sem haldnir hafa verið á Íslandi. Og svo vinna á mánudaginn 7.30 ...

Blóðugur vinnudagur hjá mér í gær. Brjálað rok og einangrunarplastplötur (langt orð.is) passa ekki vel saman. Í síðustu viku eyddum við fullt af tíma í að leggja þessar blessuðu plötur en þegar við mættum í gær var allt út um allt. Svo vorum við eitthvað að reyna að laga þetta en gáfumst að lokum upp og tókum allt inn aftur. Hvað ætli ég fái að gera í vinnunni á morgun? Allavega, þegar við vorum að tína þessa plötur saman var ég ofan í skurði þar sem var logn að taka plötur sem þangað höfðu fokið. Ég setti þær síðan upp en stundum tók rokið svo mikið í plöturnar (og ég hélt bara með annarri) að ég missti stjórn á þeim. Svo fór með eina að ég missti hana en hafði nú ekki miklar áhyggjur, sæki hana bara á eftir hugsaði ég. En svo heyri ég: AAAAAAAARH..ááiii... Þá hafði platan fokið upp og beint í sméttið á vinnufélaga mínum Gunna og hann steinlá. Platan brotnaði í þrennt og hann blóðugur í framan sökum blóðnasa. Ég sá hann að vísu ekki fá þetta í hausinn en heyrði frá öðrum að þetta hefði verið massíft fyndið. Mér brá nú alveg fyrst þegar ég sá blóðið en gat svo ekki annað en drepist úr hlátri þegar ég sá að þetta voru bara blóðnasir...

Ég fór á fyllerí í gær með Jonka og Bergi. Fórum fyrst á Fridays og horfum á Svíþjóð - Holland og fengum okkur að borða. Þess má geta að þegar leikmennirnir löbbuðu inn á völlinn sagði ég að Mellberg mundi klúðra í vítaspyrnukeppni. Og hvernig fór aftur???
Svo var farið til Rabba og þaðan til Elínar sem er vinkona Elísabetar. Þar voru fyrir Helga, Elísabet, Heiðrún og Rúna og svo nokkrar fótboltastelpur. En ég var einhvern meginn ekki alveg að fíla mig í gær og varð bara voða þungur og nennti engu. Var bara búinn að drekka of mikið held ég. Jón Karl var í fantastuði og ekki sáttur með mig. Hann hélt ég þyrfti bara að hressa mig við og hætti ekki að dæla í mig áfengi til að ég kæmist í gírinn. En ég komst aldrei í hann og varð í raun bara verri og verri. Í dag er ég bara búinn að slappa af í þynnkunni. Búinn að dusta rykið af gítarnum fyrir útileiguna næstu helgi og spilaði aðeins á hann. Ég held ég spili ekkert fyrr en fólk er komið vel í glas...

Auf wiederschreiben!

sunnudagur, júní 20, 2004

Candyfloss

Jæja þá er enn ein vikan búinn. Að þessu sinni innihélt hún 17. júni og tvö fyllerí og svo nottla alveg fullt fullt af fótbolta. Fór reyndar í golf líka í gær með BCK til Hveragerðis. Við fórum alveg á kostum þarna á golfvellinum. Við gengum ábyggilega 10 km því það var fátt um bein högg. Mér finnst ég ekkert vera að skána í golfinu, eigilega fer þetta bara versnandi...

Portúgalar gerðu góða hluti áðan og slóu Spánverja út úr EM. Ronaldo sko...
Það er gaman hvernig allir verða sérfræðingar í fótbolta á svona tímum. Allt í einu vita allir allt um fótboltahefðir annarra þjóða og eru með rangstöðuregluna alveg á hreinu. Það er samt með ólíkindum að þeir sem vinna við að lýsa leikjum séu ekki með reglurnar á hreinu. Það kemur bara tóm steypa út úr þeim. Þetta á sérstaklega við um rangstöðuna sem er í sjálfum sér mjög einfalt fyrirbæri. Fyrir áhugaverða bendi ég á þetta. Þetta er alveg idiotproof og það er spurning að senda þetta á Samma og Þorstein J.
Það var fjölskylduboð hérna áðan, Kristófer orðinn 17 ára sko. Mjög óhentugt að eiga afmæli sama dag og Spánn vs. Portugal er í sjónvarpinu. En þá sátum við kadlarnir í familíunni og horfum á boltann og þá fór fólk að slá um sig með setningum um hina ýmsu leikmenn og svoleiðis. Augljóslega eitthvað sem einn af snillingunum sem vinna á Íþróttadeildinni hafa sagt og gripið úr lausu lofti. Já, Rooney er búinn að eiga frábært tímabil með Everton í ár... - qué?

En ég nenni nú ekki að eyða meiri tíma í pirring. Pæling að fara bara að sofa.

mánudagur, júní 14, 2004

Ef Visa vaknaði til lífsins

og yrði að manneskju, hverning manneskja væri VISA? Þetta er helvíti góð spurning.
Ég fór í dag í umræðufund hjá IMG Gallup á Laugarveginum. Fór beint eftir vinnu í sund og náði 5 mínutna tjilli í iðulauginni og fór svo rakleiðis á fundinn. Á föstudaginn var hringt í mig og spurt hvort ég vildi taka þátt í svona. Ég var vakinn til að svara í símann og var þar af leiðandi ekki í skapi til að tala við Gallup og ætlaði eigilega bara að biðja konuna um að láta mig í friði en svo nefndi hún eitthvað um 5000 kr og léttar veitingar. Þá sá ég fram á mun betri tímalaun en hjá ÍAV og sló til. Þetta var líka bara nokkuð gaman (ég lifi semsagt nokkuð sorglegu lífi) og tók rétt tæplega tvo tíma. Umræðan snerist um kreditkort, VISA og Eurocard og ímynd fyrirtækjana. Hvernig bíll er VISA? og svona rugl. Þar gafst mér færi á að gerast djúpur og leita til listamannsins innra með mér. Ég held að ég hafi talað langmest þarna af öllum, vann virkilega fyrir peningnum (sem var reyndar í formi inneignarnótu í Smáralindina).

Jájá, svo er EM bara komið í gang. Þetta er algjört paradís. Alltaf fótbolti í sjónvarpinu. Reyndar er þessi Þorsteinn J strax farinn að fara í taugarnar á mér. Hann er eitthvað svo glataður.

En nú ætla ég að fara að sofa og vera hress og kátur á morgun.

þriðjudagur, júní 08, 2004

Dauðsföll

Dauðsföll

Þau mega mín vegna vera mörg núna í sumar. Þá sérstaklega fólk sem skráð er í GR.
Ég fór í dag niður á Korpu og náði í umsóknareyðublað um upptöku í GR og spurði í leiðinni um hversu langur biðlistinn væri. Tvö til þrjú ár var svarið takk fyrir.

Var að horfa á Malibu's most wanted með Jamie Kennedy. Frekar fyndin mynd sko. Nú er það bara rúmmið, er búinn að vera svo ónýtur síðustu daga í vinnunni.

mánudagur, júní 07, 2004

Trausti Woods

Jæja, enn líður langur tími milli blogga hjá mér. Margt er búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði síðast. Tók þátt í golfmóti ÍAV og spilaði 18 holur á golfvellinum í Þorlákshöfn. Gekk svona lala. Fékk 14 punkta sem telst nú ekkert súper gott. En sú sem lenti í öðru sæti hjá konunum var með 8 punkta svo þetta er nú kannski ekki hræðilegt. Geri bara betur næst. Svo fór ég með BCK og Einari í golf á föstudaginn. Við fórum til Vatnsleysustrandar og vorum mættir rúmlega 9. Okkur til mikillar ánægju var völlurinn lokaður og því gátum við spilað frítt. Fórum svo aftur í gær um sama leiti en þá var kjadlinn á staðnum og við þurftum að greiða vallargjald. Jonki fór líka með í gær og eftir eitt rosalegasta upphafshögg sem sést hefur á Kálfatjarnarvelli gekk leiðin niður á við. En æfingin skapar meistarann...

Á laugardaginn bauð Bergur í grill heim til sín. Þar mætti ég fyrstur ásamt Bjarna og síðan bættist Jonki í hópinn. Við grilluðum okkur dýrindis steik og hamborgara og fengum okkur Faustino rauðvín með sem Bjarni áfengissérfræðingur mælti sérstaklega með. Síðar um kvöldið bættust fleiri við; Svala, Signý, Rabbi, Simmi, Elísabet, Elín og Ylfa. Flestir voru nú frekar leiðinlegir og edrú en ég, Jonki, Bjarni og sérstaklega Bergur drukkum þá bara það sem hinir drukku ekki. Sjaldan hef ég séð Jonka jafn fullan og ég var nú með kjadlinum á Kýpur...
Sökum góðs veðurs um morguninn ákváðum við Bjarni að spara okkur leigubílinn og labba heim. Bjarni stjórnaði ferðinni og fór alveg ótrúlega fáránlega leið. Í gegnum garða og ég veit ekki hvað. Síðan lá leiðin fram hjá húsinu hennar Elísabetar og þá datt okkur það snjallræði í hug að hringja í hana. Greyið var nottla sofandi en vaknaði við símhringuna frá okkur. Ýkt fyndið... Nú, við létum ekki þar við sitja og hringdum í fullt af fólki en flestir voru greinilega með símann á Silent eða sváfu frekar fast.

Mánudagar í vinnunni eru alveg ótrúlega lengi að líða. Virðast enga enda ætla að taka. En hann tók nú enda um sjöleytið ótrúlegt en satt og þá var stefnan tekin heim. Sáttur með gamla kadlinn því hann var að grilla þegar verkamaðurinn kom glorhungraður heim. Át á mig gat og fór svo niður og horfði á The OC. ROSALEGUR þáttur!! Allir með öllum og Seth bara orðinn karlmaður. Sáttur með kadlinn! En það gengur ekki nógu vel hjá Marissa og Ryan, þetta veldur mér hugarangri... En Oliver sást ekkert í þættinum og það var kominn tími til.
Eftir OC skellti ég mér í sund til að tjekka á stöðunni, hvort allt væri í lagi án mín. Þessir nýju starfsmenn eru nú hálf ræfilslegir. En það er aldrei að vita, kannski rætist úr einhverjum þeirra og nýr ofurlaugarvörður verður til. Sá því miður ekki nýju gellurnar en það voru samt gellur í sundi. Þær voru með lúðalegustu gaurum sem ég hef séð lengi. Hvað er að?

Jæja, farinn að skoða tommys...

þriðjudagur, júní 01, 2004

loksins loksins

Loksins loksins

Nú hefur liðið nær vika síðan ég bloggaði síðast. Das geht nicht!
Það hefur nú gerst ýmislegt síðan þá bæði merkilegt og ómerkilegt. Samt aðallega ómerkilegt. Vinnan gengur enn ágætlega, unnið til 7 á kvöldin svo frítíminn er af skornum skammti.
Á föstudaginn fór ég í bíó með Bergi á einstaklega klisjukennda og frekar asnalega mynd. Ekki á morgun heldur hinn hét hún og fjallaði um ísöld sem skellur á jörðina á viku. Þið þekkið þetta öll, óþarfi að fara í smáatriði.

Merkilegra er nú eigilega að ég fjárfesti í golfsetti á fimmtudaginn. Ég skutlaði vinnufélaga heim í Hafnarfjörð og ákvað að kíkja í golfbúð þar sem ég hafði heyrt að væri mjög fín. Ég var nefnilega búinn að vera pæla í að byrja að stunda soldið golf, allavega meira enn ég hef gert. Ég ætlaði nú bara að kíkja en svo var kadlinn bara svo helvíti lipur að ég labbaði út með fullt golfsett, kúlur, hanska og tee. Það kostaði mig tæpan 30.000 kadl. En það er allt í góðu því laugardalslaugin var óvenju rausnarleg við mig þessi mánaðarmót og borguðu mér allt of mikið. Heiðarlegur maður mundi fara og láta leiðrétta þetta en ég ákvað að túlka þetta sem kveðju bónus.
Í dag skráði ég mig svo í fyrsta golfmót sumarsins, starfsmannamót ÍAV. Var svona eigilega manaður upp í það, ætlaði ekki að gera mig að fífli alveg strax. En þetta verður vonandi bara gaman. Kíkti aðeins á æfingasvæðið áðan og mér gekk nú bara nokkuð vel. Bötta þetta mót sko...

Víkingar kræktu í sín fyrstu stig á Íslandsmótinu í dag eftir einstaklega illa spilaðan knattspyrnuleik í víkinni við FH. Allavega seinni hálfleikur var hrikalega slakur. Hélt ég væri að horfa á ensku utandeildina. Kick and run bolti dauðans.

BCK hefur náð 21 árs aldri og hélt upp á það á sunnudaginn með heljarinnar veislu. Bjarni er án efa einhver besti gestgjafi sem til er. Ég og Hlynur gáfum honum skál sem sjá má hér. Við áttuðum okkur ekki alveg á hvítasunnunni og þegar við fórum að pæla í gjöf komumst við að því að allt var lokað. Hvað var þá til ráða? Jú, gamla góða föndrið. Við stálum hugmyndinni hans Bergs (sem hann stal annars staðar) og bjuggum til skál úr vinylplötu. Þetta heppnaðist bara nokkuð vel svo ég segi sjálfur frá...

En nú er kominn háttatími á Itsuart svo hann geti vaknað og mætt í vinnu snemma í fyrramálið.