föstudagur, júlí 30, 2004

Goner

"á morgun mun ég VAKNA UPP Í VESTMANNAEYJUM!"

Gleðilega þjóðhátíð!

sunnudagur, júlí 25, 2004

Kálfatjörn
 
Ég vildi nú bara láta vita að ég er ekki dauður. Bara búinn að vera lítið á veraldarvefnum.

Var vitni af ráni áðan á víkingsvellinum þegar KR vann Víking 2-1 frekar ósanngjarnt. Addi B Gunnlaugsson skoraði sigurmarkið þegar 48 mínutur voru liðnar af seinni hálfleik. Steinþór stóð sig nú samt ágætlega í leiknum og leit einstaklega vel út. Eins gott því Eyjó var í stúkunni.

Nú er bara vika í Verzlunnarmannahelgi sem er mjög gott. Ég fer með Jonka til Eyja í ruglið aftur í ár sem er einnig mjög gott. Nú verður farið með flugi í stað Herjólfs sem er ótrulega mjög gott.

Á föstudaginn hélt Elísabet reunion fyrir 6-X, aðal djamm bekkinn í verzló. Kominn tími á reunion enda heilt ár síðan við útskrifuðumst. Þar ríkti almennt hamingja og tók ég nokkrar myndir sem ég ætla að sýna ykkur kæru lesendum við betra tækifæri.

En ég ætla ekki að hafa það lengra að sinni, veriði bless!

mánudagur, júlí 12, 2004

IÐNAÐARMENN

Nú hef ég umgengst iðnaðarmenn í nokkrar vikur og hef lært ýmislegt um þá.
Þeir eru mestu sóðar í heimi og hafa ekki hugmynd um hvað ruslapoki er, hvað þá að setja rusl í hann. Svo eru þeir líka arfaslakir í að gefa leiðbeiningar og benda iðulega á næsta mann. Þegar maður svo loksins fær útskýringar á einhverju verkefni sem þarf að gera fyrir þá tala þeir í gátum. Björgvinn vinnufélagi og verzlingur tók sig til um daginn og kenndi pípara að henda rusli í kringum hann (eftir hann sjálfan NB). Hann var eitthvað að væla yfir því hvað allt væri í drasli. Þá rétti Björgvinn honum svartan ruslapoka og útskýrði hvernig hann virkar. Tók svo smá sýningu; tók upp rusl og setti í pokann. Píparinn var furðu lostinn og hefur skánað síðan. Ég ætti kannski að stofna fyrirtæki sem sérhæfir sig í að kenna iðnaðarmönnum svona dót, það mundi spara verktaka mikinn pening.
Verstir eru rafvirkjarnir þó hvað varðar ruslið. Það mætti stundum halda að þeir gerðu í því að klippa litla búta af rafmagnsvírum og dreyfa þeim sem mest. Pípararnir eru nú ágætir upp til hópa nema hvað þeim finnst eins og að það þurfi að brjóta alla steypu sem til er í heiminum svo það sé nú hægt að koma niðurfalli fyrir. En þrátt fyrir að biðja oft á dag um að láta brjóta fyrir sig geta þeir ekki komið skilaboðum til skila. Þeir eru eins og stjórnmálamenn stundum þegar maður spyr nákvæmlega hvað og hversu mikið þarf að brjóta. ?Jaa, brjóttu bara... æ þarna holan sko..? og svo ekki meir. Svo er sagt ?Que?? og þá kemur aðeins nánari útskýring. Þá draga þeir fram eitthvað rör og rétta manni ?Þetta þarf bara að vera ofan í, samt ekki alveg ofan í...bara ca. svona (og gera svo hreyfingu með hendinni sem á vist að vera mál en það er ekki nokkur leið að átta sig á hvað hann er að meina) og svo aðeins í kringum bara það er fínt?. Hvað þýðir aðeins? Það er mjög teygjanlegt orð en ég er að fara læra inn á þessa karla. Aðeins hefur nebbla ekki sömu merkingu hjá þeim öllum. Hjá sumum erum við að tala í millimetrum en öðrum í 10 cm og allt þar á milli.

Svo er eitt í viðbót með þessa gaura. Þeim er voðalega annt um verkfærin sín. Meira segja framlengingarsnúrurnar. Ef maður dirfist að fá lánaða vitlausa snúru (án þess að hún sé í notkun samt) þá verða þeir alveg trítilóðir. Þeim finnst samt alvega sjálfsagt mál að ganga í verkfærin sem ég er með eins og til dæmis hamarinn minn. Þeir spyrja ekki einu sinni, taka hann bara úr beltinu mínu án þess að segja orð.

Nú er byrjað að vinna til 8 á kvöldin. Tólf og hálfur tími sem mér þykir nú nokkuð mikið. En við fáum mat og ágætis pening svo þetta er í lagi. Maturinn í dag var samt engan veginn í lagi. Það er vonandi að hann verði betri á morgun.

Over and out!

miðvikudagur, júlí 07, 2004

KANTURINN?

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá eru þessir þokkalega á honum.

7. júlí? Hmm, that rings a bell...
KANTURINN?

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá eru þessir þokkalega á honum.

7. júlí? Hmm, that rings a bell...

þriðjudagur, júlí 06, 2004

KANTURINN?

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er þessir þokkalega á honum...

7. júli? hmm, that rings a bell....

mánudagur, júlí 05, 2004

ÞOKKALEGA Á KANTINUM!

Nylon hafa reynt að sannfæra okkur síðustu vikur um að Helgin hafi verið ömurleg. En það var svo sannarlega ekki tilfellið að þessu sinni. Allavega ekki hjá mér. Haldið var í skóga á föstudeginum þegar BCK var búinn í vinnunni.






þar var sigrinum í skógarleikunum rænt af okkur í undanúrslitum þar sem dómarinn þorði ekki að taka afstöðu (við tókum þetta klárlega á endasprettinum). Mikið var um skemmtilegt fólk á skógum og var þetta að mínu mati mjög vel heppnuð útileiga. Svo á sunnudeginum var haldið heim um 2 leytið og svo farið á Metallica um kvöldið. Þvílík og önnur eins snilld hefur aldrei sést í Egilshöllinni (nema kannski þegar ég er í fótbolta þar). Metallica stóðu svo sannarlega fyrir sínu og spiluðu mjög flott prógram. Ég var sérstaklega sáttur með nýja bassaleikarann sem hlýtur að vera svalasti bassaleikari sem til er.
Svo var reyndar líka úrslitaleikur EM en hann var alveg hundleiðinlegur. Samt verður það að segjast eins og er að þessir Grikkir og Otto Rehagel séru snillingar. Ég meina, þeir geta ekkert í fótbolta - notuðu bara hausinn. Leiðilegur fótbolti en hann skilar sínu. Stundum mætti halda að þýska landsliðið væri þarna inná.

Anyway, ég nenni ekki að blogga meira að þessu sinni. Ætla bara að ná mér í smá svefn, eitthvað sem var af frekar skornum skammti um helgina.