mugol í ruðin raranneK
Ég verð nú að segja eins og er að ég er búinn að fá upp í kok af þessum bessuðu grunnskólakennurum. Jújú, þeir eiga voða bátt og eiga alveg ábyggilega skilið hærri laun. En þetta með að skrópa í vinnu og segjast vera heima í taugaáfalli - ekki að kaupa það sko. Og það sem verra er, er að hlusta á þessi grey vælandi dag út og dag inn. "Nenenenen, nenene, nenenene, nenenenenenene nenene neeeeeeeeeeeee".
"Það er ekki hægt að lifa við svona kjör blablabla"
Þá spyr ég: var það ekki nokkuð ljóst þegar þú ákvaðst að verða kennari að þú yrðir ekki meðal launahæstu manna í þjóðfélaginu?
Mér finnst þeir stundum vera gera úlfalda úr mýflugu sko.
En nóg um það. Skólinn gengur ógslea vel og ég næ að læra allt og vera með allt á hreinu (nei).
Komst að því í dag að stærsta eldfjall Íslands er Öræfajökull sem gaus síðast 1727. Fékk nebbla sms frá vinkonu minni frá Danmörku í dag sem var svo hljóðandi:
Hej Trausti, hvordan går det? Nu er du jo min Islands expert så jeg har lige et spørgsmål til dig. Hvad hedder Islands største vulkan?
Lausleg þýðing: Hæ sæti, ég dýrka þig. Þú ert svo hot! En hvað heitir stærsta eldfjall á Íslandi?
Ég verð nú að viðurkenna að ég var ekki alveg með þetta á hreinu og spurðist því fyrir og flétti þessu upp og komst að því að Öræfajökull er stærstur. Ég svaraði því sms-inu og fékk fljótlega svar: øøh, ok. Men jeg kan vælge mellem Etna, Hekla og Fujiyama...
Lausleg þýðing: Sjitt hvað mér finnst þú sætur, en ég get bara valið milli Etna, Hekla og Fujiyama.
Ég svaraði henni því að þá væri líklegast skynsamlegt að svara Hekla þar sem Etna er á Ítalíu og Fujiyama í Japan...
En hún var að taka þátt í einhverjum leik og gat unnið ferð til Íslands. Það er vonandi að hún vinni og kíki í heimsókn.
Nú ætla ég hins vegar að fara að sofa því ég meika ekki að lesa meira í þessu ógeðslega deildajöfnuhneppi frá Reyni Axelsyni, launsyni Adolfs Hitlers.
bless bless, og veriði hress!
eða eins og Bert orðaði það í dönsku útgáfunni: Hej med dig, leverpostej!